FJÖLÆRAR PLÖNTUR - RAÐAÐ EFTIR LATNENSKU HEITI
.
[SMELLTU HÉR]

FJÖLÆRAR PLÖNTUR - RAÐAÐ EFTIR ÍSLENSKU HEITI
A B D E F G H I J K L M N O P R S T U V Y Þ Æ Ö

Best er að velja saman fjölær blóm með tilliti til staðsetningar og blómgunartíma,
sem er allt frá því í maí og fram í september eftir tegundum.

Ef þú smellir hér þá færðu yfirlit yfir plöntur sem henta í steinahæðir
Ef þú smellir á ctrl og f saman getur þú leitað t.d. að harðger, sól, fífill eða rauð.

Alpabjalla Cortusa matthioli Purpurarauð blóm í júní, harðgerð. A   [FARA EFST Á SÍÐU]
    Hæð 30 cm
Alpadesurt Hugueninia tanacetifolia Blómin í fagurgulum klösum í júlí.
    Góð í blómaengi, harðgerð og sáir sér.
Alpafífill Leontopodium alpinum Gráhvít blóm í júlí-ágúst. Grá loðin blöð.
    Þarf þurran jarðveg. Blöðin má þurrka.
    Hæð 15-20 cm.
Alpalín Linum alpinum Himinblá blóm í klösum í júlí.
    Hæð 15 - 30 cm
Alpasveipstjarna Astrantia carniolica ‘Rubra’ Dökkrauð reifablöð. Blómgunartími
    júlí-ágúst. Hæð 60 cm.
Alpasveipur Adenostyles alpina Fjólublá blóm í stórum sveipum í júlí-
    ágúst. Blaðfallegur og harðgerður.
    Hæð 30-50 cm
Alpaþyrnir 2 Eryngium alpinum 2 Blá blóm í júlí-september. Tilvalinn í
    þurrskreytingar. Hæð 60 cm.
Anganmaðra Galium odoratum Blómin hvít. Myndar fljótt breiður og er
    því góð þekjuplanta. Hæð 10-30 cm.
Apablóm / Tígurblóm Mimulus guttatus Gul blóm með rauðurm doppum allt
  sumarið. Skuggþolið og sáir sér töluvert.
    Hæð 30-50 cm.
Aronsstigi 2 Polemonium carneum 2 Bleik blóm í löngum klösum allt sumarið.
    Hæð 40-50 cm.
Aronsvöndur Erysimum Ljósgul blóm í júní-júlí. Hæð 30 cm.
  hieraciifolium  
Asíuhnappur Trollius asiaticus Gulrauð blóm í júní. Skuggþolinn og
    harðgerður. Hæð 50 cm.
Atlasfífill Anacyclus depressus Blómin hvít / dökkrauð. Góð í steinhæðir.
    Viðkvæm, tvíær. Hæð 10-15 cm.
Axdepla Veronica spicata ‘Rosea’ Bleik blóm í júlí-ágúst. Harðgerð.
    Hæð 30 cm.
Álfahjarta Dicentra eximia Blómin ljósrauð hangandi í stuttum
    klösum. Hæð 20-30 cm.
Álfakollur Stachys grandiflora Rauðbleik blóm í ágúst. Harðgerður.
  ‘Superba’ Hæð 30-50 cm.
Álfakragi Iberis sempervirens Hvít blóm í júní. Sígrænn hálfrunni.
    Hæð 30 cm.
Álfaljós Stachys monnieri Rauðbleik blóm í stórum kollum í ágúst.
    Harðgert. Hæð 30 cm.
Álfamunnur Linaria alpina Blómin fjólublá með gulrauðan ginpoka.
    Góður í steinhæðir. Harðgerður.
    Hæð 10-15 cm.
Ástareldur Lychnis calcedonica Rauð blóm í júní. Hæð 40 cm.
Baldursgull Coreopsis grandiflora Gul blóm í ágúst-september. Sólelsk. B   [FARA EFST Á SÍÐU]
    Hæð 40 cm.
Berghnoðri Sedum reflexum Gul blóm í júlí. Bestur í þurrum jarðvegi.
    Tilvalinn í steinhæðir. Hæð 15 cm.
Berglykill Androsace spec. Blómin hvít í júlí-ágúst. Fínleg planta.
  ´Star Dust´ Hæð 25 cm.
Bergnál Alyssum saxatile Gul blóm í júní. Ágæt í steinhæð.
    Þarf þurran stað. Hæð 20 cm.
Bjarnarrót Meum athamanticum Hvít blóm í júlí. Falleg og fínleg blöð.
    Gömul lækningajurt, harðgerð og
    skuggþolin. Hæð 30 cm.
Bláfífill Cicerbita alpina Blá blóm á háum stönglum í júlí. Þarf
    skjólgóðan stað, sáir sér og nær allt að
    2 m hæð.
Bládrekakollur 2 Dracocephalum Bláir blómklasar í júlí. Harðgerður og
  grandiflorum blómviljugur. Hæð 20-40 cm.
Bláklukka 2 Campanula rotundifolia Bláar klukkur í júlí-ágúst, harðgerð.
    Hæð 25 cm.
Blákollur Jasione laevis Blómin fagurblá. Hæð 20-40 cm.
Blálauf Acaena caesiglauca Smágerð blágræn blöð og grænleit blóm
    í kúlulaga kolli. Hæð 10 cm.
Blámannsljós Verbascum Bleik fjólublá eða hvít blóm. Klippa þarf
  phoeniceum blómstöngulinn af eftir blómgun.
    Hæð 60 cm.
Blásól Meconopsis Stór blá eða hvít blóm í júní-júlí.
  betonicifolia Skuggþolin og meðalharðgerð.
    Hæð 60-70 cm
Bláþyrnikollur Echinops ritro Blá blóm í ágúst-sept. Harðgerður.
Blendings- / Rósamura   Tilvalinn í þurrskreytingar. Hæð 80 cm.
Blóðberg Thymus praecox Ljósfjólublá, ilmandi blóm í júlí. Harðgerð
    kryddjurt. Hæð 5 cm.
Blóðgresi Geranium sanguineum Rauð blóm í júlí. Hæð 30 cm.
Blóðkollur Sanguisorba officinalis Dökkrauðir blómkollar í júlí. Þarf rakan
    og frjóan jarðveg. Hæð 20-40 cm.
Blóðmura Potentilla nepalensis Bleik blóm með dökkri miðju í ágúst.
    Harðgerð. Hæð 40-50 cm.
Blævatnsberi Aquilegia flabellata Ýmsir blómlitir. Blómríkur og harðgerður.
  ‘Jewel’ Hæð 10 –15 cm.
Blævatnsberi Aquilegia flabellata Tvílit blá og hvít blóm í júní-júlí.
  ‘Mini Star’ Harðgerður og blómviljugur. Hæð 20 cm.
Blöðrubikar Physalis alkekengii Allstór gul blóm í blaðöxlum. Bikarinn
    verður útblásinn 6 cm. langur og umlykur
    aldinið þegar það verður fullþrorskað.
    Þarf frjóan jarðveg, sólelskur.
    Hæð 50-60 cm.
Bóndarós 2 Paeonia officinalis Stór fyllt rauð, bleik eða hvít blóm í júlí.
    Sólelsk og skjólþurfi. Þarf frjóan jarðveg.
    Hæð 60-70 cm.
Bronslauf Rodgersia podophylla Stór bronslituð blöð og hvít smá blóm í  
    júní. Skuggþolið og skriðult.
    Hæð 50-70 cm.
Brúðarvefur 2 Filipendula vulgaris Hvít blóm í júlí, harðgerður.
    Hæð 20-40 cm.
Brúnagull Helichrysum tianshanicium Gráloðin blöð og stönglar. Blómin gular
    og rauðgular körfur í júlí-ágúst.
    Hæð 20-30 cm.
Brúskur Hosta Blöðin mynda fallegan og þéttan
    blaðabrúsk sem er aðalprýði plantanna.
    Þau eru breið með áberandi æðar-
    strengjum. Oft tvílit. Margar tegundir
Burnrót ísl. / Svæfla Rhodiola rosea Gul blóm í júní. Kúlulagavöxtur.
    Harðgerð. Hæð 20-40 cm.
Dalalilja Convallaria majalis Hvítar ilmandi klukkur í hangandi klasa í D   [FARA EFST Á SÍÐU]
    maí-júní. Skuggþolin og skriðul.
    Hæð 20 cm.
Dalmatíublágresi Geranium dalmaticum Bleik blóm í júlí-ágúst. Fallegir haustlitir.
    Hæð 15 cm.
Doppugullrunni Hypericum perforatum Gul blóm í júlí-sept. Þarf þurran sólríkan
    stað. Hæð 40-60 cm.
Drekagin Horminum pyrenaicum Blá blóm í ágúst. Hæð 15-30 cm.
Dreyramura   Blómin bleik með dökkri miðju.
    Hæð 15-20 cm. Harðgerð og blómviljug.
Dröfnuklukka Campanula punctata Blómklukkurnar eru stórar hangandi,
    gulhvítar með rauðum dröfnum að innan
    í ágúst. Hæð 20-40 cm.
Dröfnusteinbrjótur Saxifraga rotundifolia Blómin hvít og stjörnulaga á löngum
    stilkum. Harðgerður og blómríkur.
    Hæð 30-50 cm.
Dvergadrottning Dianthus deltoides Rauð eða bleik blóm í júlí-ágúst.
    Hæð 15-20 cm.
Dverghjarta 2 3 4 Dicentra formosa 2 3 4 Bleik hjartalaga blóm frá maí og allt
    sumarið. Skuggþolið og harðgert.
    Hæð 40 cm.
Dvergahnappur Trollius pumilus Gul blóm í júní, harðgerður. Hæð 20 cm.
Dvergaskór Calceolaria biflora Gul blóm í júní, harðgerður. Hæð 15 cm.
Dvergaslæða Gypsophila repens Bleik eða hvít blóm í júlí-ágúst. Skriðul
    og þarf þurran jarðveg og sól. Góð í
    steinhæðir. Hæð 10 cm.
Dvergastigi Polemonium reptans Ljósblá blóm mest allt sumarið.
    Skuggþolinn og harðgerður. Hæð 30 cm.
Dvergavör Ajuga reptans Blómin blá og blöðin rauðblá. Góð
    skuggþolin þekjujurt. Hæð 10-15 cm.
Dvergblaðka Lewisia pygmaea Bleik eða rauðfjólublá blóm í júlí.
    Harðgerð. Hæð 5-8 cm.
Dvergdepla Veronica prostrata Blómin ljósblá í þéttum keilulaga klasa.
    Hæð 10-20 cm.
Dverghumall Achillea nana Blómin hvít í júlí-ágúst.
    Hæð 10-15 cm.
Dvergvöndur Gentiana acaulis Stórar, dökkblár klukkur í maí-júní.
    Harðgerður. Hæð 5-10 cm.
Eldlilja Lilium bulbiferum Blómin appelsínugul í júlí. Skuggþolin E   [FARA EFST Á SÍÐU]
    og harðgerð. Hæð 80-100 cm.
Engjablaðka Lewisia nevadensis Hvít blóm í júní. Þarf þurran stað.
    Hæð 15 cm.
Esaúfífill / Garðakobbi Erigeron speciosus Jaðarblóm blá, hvirfilblóm gul, frá júlí-
    sept. Harðgerður. Hæð 40-50 cm.
Fagurfífill Bellis perennis Blómin rauð, hvít eða bleik frá júní til F   [FARA EFST Á SÍÐU]
    hausts. Hæð 10-20 cm.
Fagurklukka Campanula persicifolia Blá blóm í júlí-ágúst.
    Hæð 50-70 cm.
Fagursmæra Oxalis adenophylla Stór bleik blóm í júní-júlí. Þarf sólríkan
    stað, þolir illa bleytu. Hæð 10-15 cm.
Fellalykill Primula alpicola Blómin fjólublá eða gul, ilmandi í júlí.
    Harðgerður. Hæð 20 cm.
Fingurbjargarblóm Digitalis purpurea Stórar klukkur í ýmsum litum í ágúst-
    sept. Oftast tvíær. Hæð 100 cm.
Fjaðradrottning / Dianthus plumarius

 

Bleik, ilmandi blóm í júlí. Harðgerð.
Fjaðurnellika 2   Hæð 25 cm.
Fjallabjalla Pulsatilla alpina Hvít blóm í júní. Harðgerð.
     Hæð 30 cm.
Fjalladís 2 Erinus alpinus Blómin rauðlilla í júní. Hæð 10-15 cm.
Fjallagullblóm Arnicia montana Stórar gular blómkörfur í ágúst.
    Hæð 40-50 cm.
Fjallaholurt Silene alpestris Hvít blóm. Góð þekjujurt. Hæð 10-15 cm.
Fjallakornblóm 2 Centaurea montana Blá blóm í ágúst. Harðgerð. Hæð 50 cm.
Fjallasól Papaver alpinum Blómin gul, hvít eða bleik.
    Góð í steinhæðir. Hæð 10-15 cm.
Fjallasóley Ranunculus alpestris Hvít blóm í maí-júní. Harðgerð og falleg.
    Hæð 10-15 cm.
Fjallasveipur Adenostyles alliariae Fjólublá blóm í júlí. Harðgerður.
    Hæð 150 cm.
Fjallastjarna Aster alpinus Fjólublá blóm í júní. Hæð 20 cm.
Fjalldalafífill (ísl) Geum rivale Bleik lútandi blóm í júlí. Harðgerður.
    Hæð 20 cm.
Fjöllaufungur Athyrium filix-femina Stór burkni, skuggþolinn og
    harðgerður. Hæð 60 cm.
Flatþyrnir Eryngium planum Blá blóm í ágúst. Þarf sólríkan stað.
    Má þurrka. Hæð 100 cm.
Flipadrottning Dianthus monspessulanus Hvítbleik blóm í júlí-ágúst. 
    Hæð 20-30 cm.
Freyjubrá Leucanthemum Hvít blóm með gulri miðju í júlí-ágúst.
  vulgare Harðgerð. Hæð 60-70 cm.
Freyjugras Thalictrum aquilegoflium Hvítir eða fjólubláir blómaskúfar í júlí-
    ágúst. Skuggþolið og harðgert.
    Hæð 100 cm.
Friggjarlykill Primula florindae Gul eða rauðgul, ilmandi blóm í júlí-
    ágúst. Skuggþolinn og harðgerður.
    Hæð 50 cm.
Frúarlykill Primula x pubescens Blendingar með ýmsa blómaliti í maí-júní.
    Harðgerður. Hæð 10-15 cm.
Garðablágresi Geranium pratense Stór blá eða hvít blóm í júlí-ágúst. G   [FARA EFST Á SÍÐU]
Storkanef   Harðgert. Hæð 40-60 cm.
Garðablákolla Prunella grandiflora Purpurarauð eða hvít blóm í júlí.
    Hæð 30 cm.
Garðageisli Telekia speciosa Gul blóm í júlí-ágúst. Harðgerður.
    Hæð 100-150 cm.
Garðagullhnappur Trollius x cultorum Stórir rauðgulir blómhnappar í júní.
  ‘Orange Globe’ Harðgerður. Hæð 50-70 cm.
Garðakobbi / Esúafífill    
Garðalójurt Antennaria dioica Bleik blóm í júlí. Gráloðin blöð.
    Hæð 15 cm.
Garða Maríustakkur Alchemilla mollis Gul blóm í júlí, blómin má þurrka.
  Harðgerður. Hæð 50 cm.
Garðasól 2 3 Papaver nudicaule 2 3 Blómin í ýmsum litum allt sumarið. Sáir
    sér nokkuð. Harðgerð. Hæð 20-30 cm.
Garðavatnsberi Aquilegia x hybrida Blómin í ýmsum litum.
  ‘McKana’ Harðgerður og blómviljugur.
    Hæð 60-80 cm.
Garðskriðnablóm 2 Arabis caucasica Bleik eða hvít blóm í maí, harðgert.
    Hæð 15 cm.
Geislablaðka Lewisia columbiana Lillablá blóm í maí-ágúst. Þarf þurran
    stað. Hæð 15 cm.
Geitabjalla Pulsatilla vulgaris Fjólubláar, hvítar eða rauðar bjöllur í maí-
    júní. Fremur harðgerð. Hæð 20 cm.
Geitaskegg / Jötunjurt Aruncus dioicus Blómin gulhvít í júlí-ágúst. Harðgert.
  Hæð 150 cm
Geldingahnappur 2 Armeria maritima ‘Alba’ Hvít lítil blóm í kúlulaga kolli í júlí.
    Harðgerður og góður til þurrkunar.
    Hæð 15-20 cm.
Geldingahnappur Armeria maritima nr.1 Rauðbleik blóm í kúlulaga kolli í júlí.
  ´Splendens´ Þrífst vel hér. Hæð 20 cm.
Gemsuskegg Aruncus aethusifolius Gulhvít blóm í júlí-ágúst, rauðir haustlitir.
    Harðgerð og skuggþolin. Hæð 20 cm.
Glóbjalla Pulsatilla alpina Gul blóm í júní. Harðgerð.  Hæð 30 cm.
  apiifolia  
Glóðarvatnsberi Aquilegia formosa Rauð blóm með hvítri miðju. Blómviljugur
    og harðgerður. Hæð 45-70 cm.
Glæsimura 2 Potentilla recta 2 Gul blóm á uppréttum stönglum í júlí-
    ágúst. Hæð 40 cm.
Goðalykill Dodecatheon meadia Fjólublá blóm í júlí-ágúst. Harðgerður.
    Hæð 40 cm.
Graslaukur Allium schoenophrasum Blómin blá. Blöðin notuð til matargerðar.
    Harðgerður. Hæð 25-30 cm.
Grassóley Ranunculus gramineus Gul blóm í júlí. Harðgerð. Hæð 30 cm.
Greifaspori Delphinium grandflorium Blómin stór og fagurblá í júlí-ágúst.
    Skammlífur. Hæð 50-80 cm.
Gráþyrnikollur Echinops Ljósblá blóm í ágúst-sept. Harðgerður.
  sphaerocephalus Hæð 120-140 cm.
Goðadrottning Dianthus caryophyllus Fyllt ilmandi blóm í ýmsum litum. Tvíær.
    Hæð 30 cm.
Gullhnappur Trollius europaeus Gul blóm í júní. Skuggþolinn og mjög
    harðgerður. Hæð 50-70 cm.
Gullhnoðri Sedum aizoon Gul blóm í júlí-ágúst. Hæð 30 cm.
Gullgæsajurt Anthemis tinctoria Gul blóm í ágúst-sept. Hæð 30-60 cm.
Gullhrís Solidago virgaurea Gulir blómskúfar í ágúst. Harðgerður.
    Hæð 20-30 cm.
Gullkobbi Erigeron aurantiacus Rauðgul blóm í júlí-ágúst. Harðgerður.
    Hæð 30-40 cm.
Gullsteinbrjótur Saxifraga aizoides Gul blóm í júlí. Harðgerður. Hæð 10 cm.
Gullhumall Achillea tomentosa Gul blóm í júlí, loðin blöð. Þarf þurran og
    sendinn jarðveg, sólelsk. Hæð 15-20 cm.
Gulsól Meconopsis cambrica Gul, rauð eða appelsínugul blóm í júlí-
    september. Hæð 40 cm.
Gulvöndur Gentiana lutea Gul blóm í klösum í júlí-ágúst. Stór blöð.
    Harðgerður. Hæð 100 cm.
Gyðjulykill Primula parryi Blómin rósrauð í júlí. Harðgerður.
    Hæð 10-30 cm.
Hagasalvía Salvia pratensis Stór blá blóm í júlí ágúst. Harðgerð. H   [FARA EFST Á SÍÐU]
    Hæð 50-70 cm.
Hanaspori Corydalis lutea Gul blóm, blómviljugur. Skuggþolinn.
    Hæð 25 cm.
Haustblágresi Geranium endressii Bleik blóm í júlí-sept. Harðgert.
Trönunef   Hæð 25-40 cm.
Heiðabjalla Pulsatilla halleri Fjólublá blóm í júní-júlí. Harðgerð.
    Hæð 25 cm.
Helluhnoðri Sedum acre Gul blóm í júlí. Sólelskur og harðgerður.
    Tilvalin í steinhæðir. Hæð 5-10 cm.
Heslijurt Asarum europaeum Sígræn og gljáandi blöð.
    Myndar stórar, fallegar breiður.
    Skuggþolin. Hæð 10-20 cm.
Hjartablóm Dicentra spectabilis Hjartalaga bleik og hvít blóm í júlí. Þarf
Lautinantshjarta   sólríkan stað. Hæð 50-70 cm.
Hjartarfífill Doronicum orientale Gul blóm í maí-júní. Skuggþolinn og
    harðgerður. Hæð 50 cm.
Hjartaklukka Campanula carpatica Bláar eða hvítar klukkur í júlí-ágúst.
    Hæð 30 cm.
Hjartasteinbroti Bergenia cordifolia Bleik blóm í júní. Sígrænn, Skuggþolinn
    og harðgerður. Hæð 30 cm.
Hlíðasunna Inula orientalis Gul blóm í júlí-ágúst. Harðgerð.
  grandiflora Hæð 40 cm.
Hófsóley Caltha palustris Gul blóm í maí-júní. Þolir raka og
    hálfskugga. Harðgerð. Hæð 20-30 cm.
Hófsóley Caltha palustris Hvít blóm í maí-júní.
  ´Alba´ Þolir raka og hálfskugga. Harðgerð.
    Hæð 20-30 cm.
Hólaklukka Campanula collina Stórar bláar hangandi klukkur í júlí-
    ágúst. Hæð 20-30 cm.
Hraunbúi Aubrieta x cultorum Vex í jarðlægum breiðum. Blómin
    fjólublá. Hæð 10-15 cm.
Hraunbúi Aubrietia x hybrida Bleik blóm í maí-júní. Þarf þurran stað.
    Hæð 10 cm.
Hraundepla Veronica austraca Blá blóm í júlí-ágúst. Harðgerð
  ssp. teucrium Hæð 30-40 cm.
Huldulykill Primula elatior Ljósgul blóm í maí júní. Hæð 20 cm.
Humall Humulus lupulus Vafningsjurt, sem getur náð 2-5 m. Á
    sumri. Skuggþolin og harðgerð.
Húslaukur Sempervivum Bleik blóm í júlí-ágúst. Er sígrænn og
    þarf sendinn jarðveg og sólríkan stað.
    Ýmis afbrigði. Hæð 10 cm.
Hvolflaukur Allium cernuum Blómgast í júní-júlí hvitum, bleikum eða
    rósrauðum blómum, hangandi á löngum
    stilkum. Hæð 30-40 cm. Harðgerð.
Hæðalykill Primula beesiana Blóm í klösum og ýmsum litum.
    Hæð 40-60 cm.
Höfuðklukka Campanula glomerata Blómin blá eða hvít í ágúst, harðgerð.
    Hæð 30 cm.
Iðunnarlykill Primula cockburniana Appelsínugul blóm í klösum í júní-júlí. I   [FARA EFST Á SÍÐU]
    Hæð 30-50 cm.
Ilmfjóla Viola odorata Stór, ilmandi fjólublá blóm allt sumarið.
    Þarf vetrarskýli. Hæð 15-30 cm.
Ilmgresi Geranium macrorrhizum Bleik blóm í júlí-ágúst. Hæð 20-40 cm.
Indíánakrans Monarda didyma Blómin fagurrauð, mörg saman í
    krönsum. Öll jurtin ilmar. Hæð 40 cm.
Ígulstrokkur Phyteuma scheuchzeri Blá blóm í júlí. Harðgerður. Hæð 20 cm.
Íralykill Primula x margotae Blendingur júlíulykils og huldulykils-
    blendinga blöðin bronslituð og blómin
    rauðbleik í maí-júni.
Ísópur Hyssopus officinalis Blá blóm í júlí-ágúst.
    Harðgerð kryddjurt. Hæð 30 cm.
Jakobsstigi Polemonium Blá eða hvít blóm í júlí-ágúst. J   [FARA EFST Á SÍÐU]
  caeruleum Skuggþolinn og harðgerður. Hæð 70 cm.
Japansmura Potentilla megalantha Gul allstór blóm frá júní. 
    Hæð 20 cm.
Japansþistill Cirsium japonicum Stór bleik blóm í júlí-ágúst. Sólelsk.
    Hæð 40-60 cm.
Jarðarberjamura Potentilla Rauð blóm í júlí-ágúst. Harðgerð.
  atrosanguinea Hæð 40 cm
Jarlaspori Delphinium nudicaule Rauð blóm allt sumarið. Skammlífur.
    Hæð 30-40 cm.
Júlíulykill Primula juliae Bleik blóm í maí. Harðgerður.
    Hæð 5-10 cm.
Jötunjurt / Geitaskegg    
Kampagríma Penstemon whippleanus Fjólublá blóm með hvítar rákir á neðri vör K   [FARA EFST Á SÍÐU]
    í júní-júlí. Hæð 20 cm.
Kasmírsalvía Salvia hians Ljósblá blóm, kraftmikill vöxtur.
    Hæð 60 cm.
Kastaníublóm Rodgersia Ljósbleik blóm síðsumars. Blaðfalleg.
  aesculifolia Þarf raka, skugga og skjól.
    Hæð 70-100 cm.
Kattablóm Nepeta x faassenii Ljósfjólublá blóm í júlí-ágúst. Grágræn
    ilmandi blöð. Hæð 30-50 cm.
Kirtilklukka Adenophora liliifolia Bláar klukkur í júlí-ágúst. Harðgerð.
    Hæð 100 cm.
Kínaglóð Incarvillea mairei Stór rauðbleik blóm í júlí. Þarf vetrarskýli.
    Hæð 30 cm.
Kínahnappur Trollius chinensis Dökkrauðgul blóm í júlí. Skuggþolinn og
    harðgerður. Hæð 50 cm.
Kínalykill Primula sikkimensis Gul trektlaga blóm á háum stöngli í júlí.
    Hæð 40-60 cm.
Kjarrmynta Origanum vulgare Harðgerð kryddjurt. Blómin ljósrauð í
    ágúst-sept. Hæð 30-50 cm.
Klappahnoðri Sedum anacampseros Dökkrauð blóm í ágúst-sept. Gráleit blöð.
    Harðgerður. Hæð 20 cm.
Klappamura Potentilla rupestris Hvít blóm í júlí. Blómviljug. Hæð 50 cm.
Klettafrú Saxifraga cotyledon Hvítir blómskúfar í júní-júlí. 
    Hæð 20-30 cm.
Klettalykill Primula saxatilis Rauðfjólublá blóm á háum blómstöngli í
    júní. Bylgjuð laufblöð. Hæð 20-30 cm.
Klettaroði Heuchera micrantha Blómin rauðleit og blöðin dökkrauð.
    Sígræn. Hæð 40-60 cm.
Klukkuvöndur Gentiana septemfida Blá blóm í ágúst-sept. Harðgerður.
    Hæð 20 cm.
Kóngaljós Verbascum Gul blóm á háum stöngli í ágúst. Blöðin
  longifolium hvítloðin, meðalharðgert.
    Hæð 120-150 cm.
Kóngulóarlaukur Sempervivum Bleik blóm á þykkum stönglum í júlí-
  arachnoideum ágúst. Hærðar blaðhvirfingar. Þarf þurran
    stað.
Kósakkadepla Veronica gentianoides Ljósblá blóm í löngum klösum í júní.
    Harðgerð. Hæð 30-50 cm.
Kúlulykill Primula denticulata Fjólublá eða hvít blóm í kúlulaga kolli.
    Hæð 20 cm.
Kvöldstjarna Aster tongolensis Fjólublá, hvít eða bleik blóm í júní.
    Hæð 25 cm.
Kögrakornablóm Centaurea uniflora  Rauðfjólublá blóm í ágúst-sept.
  ssp. nervosa Hæð 40-60 cm.
Kögurkolla Tellima grandiflora Gul blóm í júlí. Sáir sér. Harðgerð.
    Skuggþolin. Hæð 50 cm.
Laufeyjarlykill Primula vulgaris Blómin tvílit í ýmsum litum í júní. L   [FARA EFST Á SÍÐU]
    Hæð 15 cm.
Laugadrottning 2 Dianthus gratianopolitanus Blómin ilmandi og í ýmsum litum
  2  í júlí-ágúst. Blómviljug og
    harðgerð. Hæð 20 cm.
Lautinantshjarta /    
Hjartablóm    
Lárvarðarspori Delphinium Blá blóm í júní-júlí. Harðgerður. Hæð 30-40 cm.
cashmerianum
Leifsauga Gaillardia aristata Blómin dökkrauð með gulum jaðri.
    Hæð 40 cm.
Liðablágresi Geranium nodosum Blómin ljósfjólublá í júlí-ágúst.
    Hæð 20-50 cm.
Límberi Lychnis viscaria Dökkbleik blóm í júlí. Harðgerður og
    blómviljugur. Hæð 30-40 cm.
Límlykill Primula viscosa Blöðin ljósgræn og límug. Blómin lillablá
    og ilmandi í april-maí. Hæð 10 cm.
Ljósahnoðri Sedum album Sígrænn með hvítum stjörnulaga
    blómum. Hæð 10-15 cm.
Ljósasnotra Anemone magellanica Blómstrar gulum stórum blómum.
    Hæð 15-20 cm.
Lúpína / Skrautlúpína    
Maíepli Podophyllum hexandrum Stór bleik blóm á vorin, síðan þroskast M   [FARA EFST Á SÍÐU]
    allstórt rautt aldin. Harðgert. Hæð 30 cm.
Mararljós Lythrum salicaria Purpurarauð blóm í löngu axi. Sólelsk,
    þarf frjóan og rakan jarðveg.
    Hæð 50-100 cm.
Maríuskór Lotus corniculatus Gul blóm frá júní og mest allt sumarið.
    Hæð 10 cm.
Mánagras Thalictrum flavum Gul blóm í klösum í júlí-ágúst.
    Skuggþolið. Hæð 100 cm.
Mánahattur Rudbeckia fulgida Jaðarblómin appelsínugul, en
    hvirfilblómin svartbrún. Hæð 50 cm.
Melasól Papaver radicatum Gul blóm. Ekki langlíf en fjölgar sér með
    fræjum. Hæð 15-20 cm.
Meyjarskjöldur Ligularia dentata Dökkgul blóm í ágúst. Harðgerður.
    Hæð 120 cm.
Mjaðurhumall Achillea filipendulina Gul blóm í ágúst, harðgerður.
    Hæð 100 cm.
Mjaðurt Filipendula ulmaria Blómin gulhvít og ilmandi í júlí-ágúst.
    Hæð 60 cm.
Mjallarsmæra Oxalis enneaphylla Hvít blóm í júlí-ágúst. Þarf sólríkan stað,
    þolir illa bleytu. Hæð 10-15 cm.
Mjallhæra Luzula nivea Skrautgras. Fallegt í þurrskreytingar.
    Hæð 40 cm.
Mjólkurjurt Euphorbia polychroma Gulgræn blóm í júní-júlí. Hæð 30-50 cm.
Mongólahríma Leontopodium palibinianum Gulhvít blóm í júlí-ágúst. Má þurrka.
    Þarf þurran og bjartan stað. Hæð 20 cm.
Mongólalykill Primula vialii Blómknúpparnir eru hárauðir en blómin
    fjólublá í júní-júlí. Þarf þurran stað.
    Hæð 40 cm.
Morgunroði Heuchera sanguinea Blómin rauðar litlar klukkur í júlí.
    Hæð 30-40 cm.
Moskusrós Malva moschata Bleik eða hvít blóm í júlí-ágúst.
    Hæð 40-50 cm.
Musterisblóm Astilbe x arendsii Rauð, bleik eða hvít blóm í júlí-ágúst.
    Hæð 50 cm.
Mörtulykill Primula auricula Gul hvítmélug blóm í maí-júní. Mjög
    harðgerður. Hæð 15 cm.
Nunnuþrúgur Actaea rubra Hvít blóm í júní og rauð ber á haustin. N   [FARA EFST Á SÍÐU]
    Skuggþolin. Hæð 40 cm.
Næturfjóla Hesperis matronalis Fjólublá ilmandi blóm í júlí. Harðgerð.
    Hæð 60 cm.
Næturfjóla Hesperis matronalis Hvít ilmandi blóm í júlí. Harðgerð.
  ´Alba´ Hæð 60 cm.
Ólympíukyndill Verbascum olympicum Gulir blómstönglar í júlí. Stór blaðhvirfing. O   [FARA EFST Á SÍÐU]
    Oftast tvíær. Hæð 100-150 cm.
Piparmynta Mentha x piperita Lillablá blóm í ágúst, blöðin rauðlilla, P   [FARA EFST Á SÍÐU]
    ilmandi. Harðgerð kryddjurt.
    Hæð 50-60 cm.
Postulínsblóm / Saxifraga x urbium Ljósbleik blóm í júní. Harðgerð og mjög
Skuggasteinbrjótur   skuggþolið. Hæð 20-25 cm.
Prestabrá Leucanthemum maximum Stór hvít blóm með gulri miðju í júlí-ágúst.
    Harðgerð. Hæð 30-40 cm.
Purpurafífill Liatris spicata Fjólublá blóm. Skuggþolinn. Hæð 50 cm.
Purpurasmári Trifolium rubens Stórir rauðir blómkollar í júlí-ágúst.
    Hæð 50-70 cm.
Purpuravöndur Gentiana purpurea Stór, dumbrauð klukkulaga blóm í júlí-
    ágúst. Hæð 40-80 cm.
Purpuraþistill Cirsium heterophyllum Stór bleik blóm í júlí-ágúst. Harðgerður
    en dálítið skriðull. Hæð 60-100 cm.
Randagras Phalaris arundinacea Skriðult, hvítt og grænröndótt skrautgras. R   [FARA EFST Á SÍÐU]
  ´Picta´ Harðgert. Hæð 100 cm.
Randalykill Primula secundiflora Dökkrauð hangandi blóm í júní-júlí.  
    Hæð 25 cm.
Rauðhegranef Erodium manescavii Blómin stór, rósrauð og mörg
    saman í sveip í júlí-ágúst. Hæð 20-30 cm.
Riddaraspori Delphinium x cultorum Blandaðir litir í ágúst. Meðalharðgerður. 
    Hæð 100-150 cm.
Riddaraspori Delphinium Blandaðir litir í ágúst. Hæð 80 cm.
  ´Magic fountans´  
Risaklukka Campanula latifolia Blómin lillablá eða hvít í júlí-ágúst.
    Skuggþolin og harðgerð. Hæð 90 cm.
Risavalmúi / Tyrkjasól    
Rjóðursnotra Anemone sylvestris Blómin gulhvít, ilmandi. Hæð 30 cm.
Roðablágresi Geranium ibericum Stór fjólublá blóm í júlí-ágúst.
    Hæð 40-50 cm.
Roðafífill Hieracium aurantiacum Hærð blöð, blómin gulrauð í Júlí – ágúst
Roðalykill Primula hirsuta Rauðbleik blóm í maí.
    Hæð 10 cm.
Roðamjólk Euphorbia griffithii Blómin eru gul en undir eru gulrauð
    háblöð í júní-júlí. Hæð 50-80 cm.
Roðasteinbrjótur Saxifraga x arendsii Rauð, hvít eða bleik blóm í maí-júní.
    Harðgerður. Tilvalinn í steinhæðir.
    Hæð 20 cm.
Rottueyra Cerastium biebersteinii Hvít blóm í júní-júlí. Breiðir þó nokkuð úr
    sér. Harðgert. Hæð 10-20 cm.
Rósablaðka Lewisia tweedyi Gulbleik blóm í júní. Þarf þurran stað.
    Hæð 20 cm.
Rósadepla Veronica fruticulosa Blómin ljósrósrauð með dekkri æðum í
    júní-júlí. Hæð 10-20 cm.
Rósakarfa Scabiosa lucida Rauðlilla blóm frá júní-sept. Harðgerð.
    Hæð 25 cm.
Rósamura / Potentilla x hybrida Hálffyllt rauðgul blóm í júlí-ágúst.
Blendingsmura   Harðgerð. 40-50 cm.
Rósasmæra Oxalis enneaphylla Rauðbleik blóm í júlí-ágúst. Þarf sólríkan
   ´Rosea´ stað, þolir illa bleytu. Hæð 10-15 cm.
Roðahetta Lychnis flos-jovis Bleik blóm, blöðin hvítloðin. Harðgerð.
    Hæð 30 cm.
Rósatrúður Mimulus lewisii Dökkrósrauð blóm. Sáir sér nokkuð.
    Hæð 30-50 cm.
Rósulykill Primula rosea Rósrauð blóm með gulu auga í maí.
    Hæð 20 cm.
Sápujurt Saponaria ocymoides Bleik blóm í júní. Góð í steinhæðir. S   [FARA EFST Á SÍÐU]
    Hæð 10 cm.
Sedrusmjólk Euphorbia cyparissias Gulgræn blóm í júní-júlí, skriðul og
    harðgerð. Hæð 25-30 cm.
Sifjarlykill Primula veris Líkur huldulykli, með gul blóm í apríl-
    maí. Hæð 20 cm.
Silfurhnappur Achillea ptarmica Hvít blóm í júní-ágúst. Hæð 40-60 cm.
Silfurhumall Achillea clavenae Blómin hvít og blöðin silfurgrá.
    Hæð 20-30 cm.
Silfurkornblóm Centaurea dealbata Bleik blóm í júlí-ágúst. Harðgerð.
    Hæð 60 cm..
Silfurþistill / Veðurþistill Carlina acaulis Stór hvít blóm. Sólelsk. Hæð 15 cm.
   
Silfursóley Ranunculus Hvít blóm í júní. Skuggþolin, harðgerð
  aconitifolius og mjög falleg. Hæð 50-70 cm.
Silkibygg Hordeum jubatum Skrautgras, fallegt þurrkað.
    Hæð 30-40 cm.
Silkimura Potentilla argyrophylla Gul blóm með rauðri miðju í júlí.
    Hæð 30-50 cm.
Síberíublaðka / Montia sibirica Blómin eru frekar lítil og bleik. Blómrík
Síberíugrýta   og sáir sér talsvert. Góð í blómaengi.
    Hæð 20-30 cm.
Sjafnargras Thalictrum minus Fjólublá fíngerð blóm og blöð.
    Hæð 30-40 cm.
Sjafnarlykill Primula cortusoides Líkur klettalykli en blómstilkarnir styttri
    og blómin rósrauð í júní
Skarlatsfífill Geum coccineum ‘Borisii’ Rauð blóm í júní-júlí. Hæð 20-40 cm
Skeggklukka Campanula barbata Blá blóm í júlí. Hæð 30 cm.
Skessuhnoðri Rhodiola semenowii Gulhvít blóm í júní-júlí. Hæð 30-50 cm.
Skessujurt Levisticum officinale Gulgræn blóm í júlí. Góð kryddjurt.
    Harðgerð. Hæð 100-150 cm.
Skógarvatnsberi Aquilegia vulgaris Ofkrýnd blóm í mismunandi litum.
  ‘Plena’ Harðgerður. 60-80 cm.
Skrautkollur Knautia macedonica Blómin rauð í ágúst-sept. Hæð 40-60 cm.
Skrautlúpína 2 3 Lupinus x regalis Blandaðir litir í júlí-ágúst. Þarf þurran
Lúpína ´Russel´ jarðveg. Hæð 60-80 cm.
Skrautsúra Rheum palmatum Blómin rauð á háum stöngli í júlí.
    Rauðleit, stór blöð. Harðgerð.
    Hæð 100-150 cm.
Skriðljós Oenothera Blómin ljósgul, allstór. Góð í steinhæðir.
  missouriensis Blómviljug.
Skuggasteinbrjótur /    
Postulínsblóm    
Skúfa Succica pratensis Ljósbláir blómhnappar í ágúst.
    Hæð 15-20 cm.
Spaðahnoðri Sedum spathulifolium Með ljósgrágræn blöð og skærgul blóm
    í júlí. Hæð 10-15 cm.
Spánarþyrnir Eryngium bourgatii Blá blóm í ágúst-sept. góð til þurrkunar.
    Þarf sólríkan stað. Hæð 50-70 cm.
Slíðrasóley Ranunculus Blómin stór, hvít í júní. Harðgerð.
  amplexicaulis Hæð 20-30 cm.
Smáklukka Campanula cochlearifolia Ljósbláar klukkur í júlí, blómleg og
    harðgerð. Hæð 10 cm.
Snæbreiða 2 Hutchinsia alpina Hvít blóm allt sumarið. Harðgerð.
    Hæð 10 cm.
Steinahnoðri 2 Sedum spurium Bleik blóm í ágúst. Harðgerður.
    Hæð 10-20 cm.
Steindepla Veronica fruticans Ljósblá blóm í klösum í júlí-ágúst.
    Hæð 5-10 cm.
Stjörnublaðka Lewisia cotyledon Blandaðir litir í júní. Þarf þurran stað.
 2 3 4 5 6 7 8 9 10   Hæð 20 cm.
Storkanef / Garðablágresi    
Stilklauf Rodgersia pinnata Blaðplanta. Stór rauðleit blöð.
    Hæð 50 cm.
Stokkrós Alcea rosea Blandaðir litir, blómstrar í ágúst. Þarf
    sólríkan og skjólgóðan stað og
    vetrarskýli. Hæð 150 cm.
Stóriburkni 2 3 Dryopteris filix-mas 2 3 Stórgerður burkni. Skuggþolinn og
    harðgerður. Hæð 80 cm.
Stúdentadrottning Dianthus barbatus Blandaðir litir í júní-júlí. Oftast tvíær.
Stúdentanellika   Hæð 20-30 cm.
Sumarklukka Campanula medium Bleikar stórar klukkur í júlí-ágúst. Tvíær.
    Hæð 60 cm.
Sumarmáni Helenium hoopesii Gul blóm með brúnni miðju í júlí-sept.
    Hæð 60 cm.
Surtarkyndill 2 Verbascum nigrum Gul blóm á háum stönglum. Harðgerður.
    Hæð 100 cm.
Sveipablágresi Geranium maculatum Rauðbleik blóm í júlí. Blómríkt og
    harðgert. Hæð 50-70 cm.
Sveipstjarna Astrantia major Rauð blóm í júlí. Skuggþolin og
  ´Rosensinfonie´ harðgerð. Hæð 70 cm.
Svæfla / Burnirót    
Systrablóm 2 3 Scabiosa caucasica Bláar stórar blómkörfur í ágúst-sept.
    Sólelsk. Hæð 40-60 cm.
Tígurblóm Mimulus luteus Gul blóm, allt sumarið. Skuggþolið og T   [FARA EFST Á SÍÐU]
Apablóm ´Tigrinus´ harðgert. Hæð 40-50 cm.
Tröllahvönn Heracleum Stórir gulhvítir sveipir í júlí-ágúst. Þarf
   mantegazzianum frjóan jarðveg. Hæð 2-3 m.
Trönunef / Haustblágresi    
Turnskjöldur Ligularia przewalskii Gul blóm í ágúst. Harðgerður.
    Hæð 120-150 cm.
Tyrkjasól / Risavalmúi Papaver orientale Stór rauð, hvít eða bleik einföld blóm í
    júlí. Sólelsk og harðgerð. Hæð 60-80 cm.
Tyrkjasól fyllt Papaver orientale plena Blómin stór, rauð og fyllt. Hæð 80 cm.
  ‘Red Shades’  
Urðagull Chiastophyllum Gul blóm sem hanga í þéttum klösum á U   [FARA EFST Á SÍÐU]

  2

oppositifolium sveigðum stöngli. Þarf vetrarskýli.
    Hæð 15-30 cm.
Útlagi Lysimachia punctata Gul blóm í ágúst-sept. Harðgerður og
    skuggþolinn. Hæð 60-80 cm.
Vallhumall 2 3 Achillea millefolium ‘Coloado’ Ýmsir litir. Harðgerður. Hæð 50-60 cm. V   [FARA EFST Á SÍÐU]
Veðurþistill / Silfurþistill    
Venusvagn Aconitum napellus 2 Bláir blómstönglar í ágúst. Mjög
    harðgerður. Þarf ekki stuðning.
    Hæð 100 cm.
Vínlandsroði Heuchera americana Blaðplanta. Blöðin rauð og gljáandi.
    Hvít blóm. Þekjuplanta. Skuggaþolin.
    Hæð 40-60 cm.
Vorgoði Adonis vernalis Blágræn blöð og stór gul blóm í apríl-
    maí. Hæð 15-20 cm.
Vormura Potentilla neumanniana Gul blóm í maí-júní. Blómviljug og
    harðgerð. Hæð 10-15 cm.
Vorvöndur Gentiana verna Stór blá blóm í júní. Hæð 5-10 cm.
Völskueyra Cerastium tomentosum Hvít blóm í júní-júlí, loðin blöð. Harðgerð.
    Ágæt í steinhæðir. Hæð 15-20 cm.
Yllilauf Rodgersia sambucifolia Blaðplanta. Stór, bronslituð, fjöðruð blöð. Y   [FARA EFST Á SÍÐU]
    Hæð 50 cm.
Þórshjálmur Aconitum vulparia Blómin gul í löngum klasa í júlí- ágúst. Þ   [FARA EFST Á SÍÐU]
    Harðgerður. Hæð 80-100 cm.
Ísl. Þrenningarfjóla Viola tricolor Blómin blá með gulu. Blómstrar allt
Þrílit fjóla   sumarið. Sáir sér. Hæð 15 cm.
Þrídalafífill Geum triflorum Blómin ljósrauð og drjúpandi í júlí-ágúst.
    Hæð 20-30 cm.
Þyrniblásól Meconopsis horridula Blá blóm í júní-júlí. Tvíær en sáir sér
    sjálf. Hæð 50 cm.
Þyrnihnetulauf Acaena microphylla Þekjujurt með brúnleitum blöðum.
  Hæð 10 cm.

AF FRAMANTÖLDUM FJÖLÆRUM JURTUM ERU EFTIRALDAR TILVALDAR Í STEINHÆÐIR

Alpabjalla, Alpafífill, Alpalín, Aronsvöndur, Asíusóley, Álfahjarta, Álfakollur, Álfaljós, Álfamunnur, Berghnoðri, Bergnál, Bládrekakollur, Bláklukka, Blálauf, Blástjörnufífill, Blóðberg, Blóðmura, Breiðublóm, Burnirót, Dalmatíublágresi, Dvergadrottning, Dvergaskór, Dvergaslæða, Dvergavöndur, Dvergavör, Dvergdepla, Dverghumall, Engjablaðka, Fagursmæra, Fjaðurnellika, Fjallabjalla, Fjalladís, Fjallaholurt, Fjalldalafífill, Garðalójurt, Garðskriðnablóm, Geislablaðka, Geitabjalla, Geldingahnappur, Goðadrottning, Gullhumall, Gullsteinbrjótur, Hanaspori, Heiðabjalla, Helluhnoðri, Hjartaklukka, Hjartasteinbrjótur, Holurt, Hraunbúi, Huldulykill, Húslaukur, Höfuðklukka, Jarðarberjamura, Kattablóm, Klapparhnoðri, Klapparmura, Klettafrú, Kúlulykill, Laufeyjarlykill, Laugadrottning, Maíepli, Maríuskór, Melasól, Mongólahríma, Mongólalykill, Morgunroði, Mörtulykill, Postulínsblóm, Randalykill, Rjóðursóley, Roðasteinbrjótur, Rottueyra, Rósamura, Rósulykill, Sápujurt, Silkibygg, Skarlatsfífill, Smáklukka, Snæbreiða, Steinahnoðri, Steindepla, Stjörnublaðka, Urðagull, Vormura, Völskueyra, Þrídalafífill, Þyrnihnetulauf.

[FARA EFST Á SÍÐU]
 

Garðyrkjustöð Ingibjargar | Heiðmörk 38 | 810 Hveragerði | s. 483 4800 | fax 483 4005 | senda tölvupóst