Lýsing: Blaðfalleg vafningsjurt. Dökkgræn lauf og rauðir stönglar. Þarf kvenplöntu til að þroska aldin. Góður frjógjafi fyrir bæði kvenplöntur og sjálffrjóvgandi yrki. Það þarf aðeins eina Weiki á móti 6-8 kvenplöntum. Myndar ekki ávöxt.
Hæð: 8-10 m.
Aðstæður: Þolir frost niður í -30°C. Besta uppskeran fæst í köldum gróðurhúsum. Þrífst best í rökum, næringarríkum og vel framræstum jarðvegi. Þolir illa að þorna. Þarf klifurvegg, víra eða annað til að klifra eftir. Best er að klippa plöntuna seint á haustin eða yfir veturinn. Einnig er hægt að klippa plöntuna á sumrin eftir að plantan hefur myndað þykkar og harðar greinar. Plöntunni getur blætt á öðrum tímum.
Annað: Þýskt yrki.