
Lýsing: Laukplanta með hvítan sívalan stilk og lauklaga rótarenda. Bragðdaufari en matlaukur, graslaukur og hvítlaukur, en þessar tegundir eru náskyldar.
Hæð: 40 sm.
Aðstæður: Þrífst best á sólríkum stað. Þrífst best í næringarríkum, djúpum og vel framræstum jarðvegi. Þolir leirkennda staði. Plantið á 8-10 sm. dýpi með 30-40 sm. millibili. Vökvið vel fyrstu dagana. Gætið þess að engin mold fari upp fyrir þann stað sem blöðin greinast frá stilknum. Uppskerið áður en plantan myndar fræstilka.