
Lýsing: Gul blóm sem verða að smáum rauðum tómötum. Það er gott að fara með mjúkum pensli á milli blómanna ef það er lítið um býflugur á svæðinu.
Hæð: 30-100 sm.
Aðstæður: Þrífst á góðum stað utandyra, en gefur meiri uppskeru innandyra. Fyrir gróðurhús og í stofuglugga. Best er að geyma tómata við 10-12 °C. Helst ekki í ísskápnum.