Við höfum traustar rætur

MENUmenu

  • Flóra - garðyrkjustöð
  • Um fyrirtækið
  • Staðsetning
  • Gróskuklúbbur
  • Fróðleikur

Rósir

Dornrós

Details
Category: Rósir

dornros 3

Lýsing: Blómin bleik, fyllt og ilmandi  í júlí-ágúst. Runnarós.

Hæð: 0,5 - 1 m.

Aðstæður: Þarf sólríkan vaxtarstað og gott skjól. Þrífst best í djúpum, næringarríkum og vel framræstum jarðvegi.

 

dornros 14

1. Fróðleikur um rósir

Details
Category: Rósir

1 4

Antikrósir

Chinatown, Hurdalsrós, Hanne, Ingrid Bergman, Irene af Danmark, Pascali, Super Star, Virgo, Schneewitchen, Snow Cover, Western Sun.

 

Bukket rósir / Klasarósir

Allgold, Korresia / Friesia, Kordes Korona, Lili Marlen, Mandarin, Margrét danadrottning, Morsdag / Mæðradagsrós, Nina Weibull, Pernille Poulsen, Pink the Fairy, Polyantha the Fairy, Rhapsody in Blue, Rumba, Scarlet Hit, Snoevit / Snövit, Sun Hit, The Fairy, Violet Hit.

 

Flower Circus

Pepita, Pom pon, Rosanna.

 

Eðalrósir

Duftwolke, Ena Harkness, Königen der Rosen, Peace (Friðarrós), Peer Gynt (Pétur Gautur / Korol), Piccadilly, Queen Elizabeth, Troika, Whisky Mac.

 

Klifurrósir

Chinatown, Flammentanz, Golden Shower, Heidelberg, New Dawn, Pólstjarnan

 

Runnarósir

Runnarósir eru harðgerðari en aðrar rósir og oft notaðar í limgerði.

Agnes, Blanc Double de Coubert, Brúðurós ´Defender´, Dornrós, Fjallarós, Geislarós ´Harison´s yellow, Hansaland, Hansarós, Hjónarós, Louise Bugnet, Meyjarrós, Páfarós, Rauðblaðarós, Ruskin, Þokkarós ´Wasagaming´, Þokkarós ´George Will´, Þyrnirós ´Red Nelly´.

2. Rósir - Gróðursetning og klipping

Details
Category: Rósir

grodursetning 2

Gróðursetning

Rósir þurfa sól og skjól. Þær eru bestar undir suðurvegg.

Það ætti að gróðursetja allar rósir í frjóum jarðvegi og vökva vel eftir gróðursetningu.

Ágræddar rósir verður að gróðursetja djúpt, þannig að ágræðslan fari 5-10 sm. undir mold.

Fjarlægið villiskot. Þau eru venjulega ljósari og þyrnóttari en aðrar greinar á plöntunni. Þessi villiskot geta komið upp síðar og þá þarf að klippa þau.

ros.1  ros.2

Klipping

Best er að klippa rósir seinnihlutann i maí, þegar það er lítil hætta á næturfrosti.

Einnig má klippa þær í byrjun vetrar.

Ef plantan er mjög fyrirferðamikil getur verið gott að klippa hana mikið til að koma í veg fyrir skaða af völdum snjóþunga yfir vetrarmánuðina.

 

Eftirtalin atriði gilda um klippingu allra rósa:

1. Klippa og stytta sprota og stýra vexti.

2. Klippa skaddaðar, brotnar eða dauðar greinar í burtu.

3. Klippa greinar sem eru fyrir sterklegum aðalgreinum (flækjast í).

4. Klippa stubba og mjög gamlar greinar.

5. Klippa villisprota ef um ágrædda rós er að ræða.

 

Með því að smella hér getur þú fengið nánari upplýsingar um klippingu rósa

Heimild: www.gardabaer.is

 

 

 

Mæðradagsrós / Morsdag

Details
Category: Rósir

morsdag.orange 2

Lýsing: Rauð eða appelsínugul dvergrós (2 gerðir). Blómstrar í júlí-ágúst.

Hæð: 30 – 50 sm.

Aðstæður: Þarf sólríkan vaxtarstað og gott skjól. Þrífst best í djúpum og næringarríkum jarðvegi.

Allgold

Details
Category: Rósir

rosa.allgold 3+

Lýsing: Gul blóm í júlí-ágúst. Klasarós. Góð til afskurðar.

Hæð: 0,5 – 1 m.

Aðstæður: Þarf sólríkan vaxtarstað og gott skjól. Þrífst best í djúpum, næringarríkum og vel framræstum jarðvegi.

  1. Margrét Danadrottning
  2. Duftwolke
  3. Ena Harkness
  4. Europeana

Page 1 of 5

  • Start
  • Prev
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • Next
  • End
  • Innskráning
  • Efni

Created jtemplate joomla templates

Opið milli 10-17
Hringið í síma 4834800.
 
 
 
 
 
Flóra-garðyrkjustöð | Heiðmörk 38 | 810 Hveragerði | S. 483 4800 | tölvupóstur:flora@floragardyrkjustod.is
 

 

Efst
Fara á forsíðu