Lýsing: Blómgast frá miðjum maí. Hvít blóm með bleikum blæ. Mikil uppskera. Þroskar aldin í sept-okt. Meðalstór til stór, sætsúr, safarík og bragðgóð epli. Gult eða hvítt hýði öðru megin og rautt sólarmegin (um 50% rautt og 50% gult eða hvítt). Aldin geta haldist á trénu í 2-3 vikur án þess að ofþroskast. Ávextir geymast vel í ísskáp. Transparent Blance getur frjóvgað þessa tegund
Hæð: 4-5 m. Hægt að halda niðri með klippingu.
Aðstæður: Þrífst best á sólríkum vaxtarstað í næringarríkum, rökum og vel framræstum jarðvegi. Þolir hálfskugga. Sýrustig á að vera í kringum 6-7 (örlítið súr jarðvegur). Þolir illa að þorna og því nauðsynlegt að vökva vel í sólríkum sumrum. Það er ekki nauðsynlegt að klippa eplatré, en þau þola mikla klippingu. Gott er að klippa tréð vel sama ár og það er gróðursett. Best er að klippa 1/3 af ársvexti seinnipart sumars og síðan aftur að vori. Gefa skal áburð snemma vors.