Lýsing: Hvít blóm með bleikum blæ í júní. Meðalstór gulgræn epli. Þétt og safaríkt aldinkjöt. Sætsúrt bragð. Uppskera í september-október. Hálfsjáffrjóvgandi en getur líka frjóvgast með Gyllenkroks Astrakan, Aroma, James Grieve, Katja, Lobo, Mio, Oranie.
Hæð: 4-5 m. Hægt að halda niðri með klippingu.
Aðstæður: Eitt af harðgerðustu eplayrkjunum sem hafa verið prófuð á Íslandi. Þrífst best á sólríkum vaxtarstað í næringarríkum, rökum og vel framræstum jarðvegi. Þolir hálfskugga. Sýrustig á að vera í kringum 6-7 (örlítið súr jarðvegur). Þolir illa að þorna og því nauðsynlegt að vökva vel í sólríkum sumrum. Það er ekki nauðsynlegt að klippa eplatré, en þau þola mikla klippingu. Gott er að klippa tréð vel sama ár og það er gróðursett. Best er að klippa 1/3 af ársvexti seinnipart sumars og síðan aftur að vori. Gefa skal áburð snemma vors.