Um leið og við óskum nýjum eigendum velfarnaðar í starfi langar okkur að þakka viðskiptavinum okkar góð kynni og viðskipti liðinna ára. Það er okkur mikið gleðiefni að sjá garðyrkjustöðina í góðum höndum og að hún skuli vera rekin áfram með sama sniði og undanfarin ár.
Kær kveðja,
Ingibjörg Sigmundsdóttir
Hreinn Kristófersson
Á myndinni eru núverandi og fyrrverandi eigendur garðyrkjustöðvarinnar.
Eigendaskipti og nýtt nafn
1. febrúar sl. urðu eigendaskipti í Garðyrkjustöð Ingibjargar Sigmundsdóttur. Þá létu Hreinn og Ingibjörg af störfum eftir 36 ára farsælan rekstur. Nýir eigendur eru Þorvaldur Snorrason og kona hans Sigríður Sigurðardóttir ásamt systur hennar Rögnu Sigurðardóttur og eiginmanni hennar Kristni Alexanderssyni.
Þorvaldur er garðyrkjufræðingur og hefur unnið í Garðyrkjustöð Ingibjargar sl. 6 ár og systurnar koma báðar úr mikilli garðyrkjufjölskyldu en afi þeirra og síðar faðir áttu og ráku Garðyrkjustöðina Fagrahvamm í áratugi.
Rekstur stöðvarinnar verður áfram með óbreyttu sniði og sama starfsfólkið mun taka á móti viðskiptavinum.
Stöðin hefur fengið nýtt nafn og heitir nú Flóra - garðyrkjustöð. Nafnið kemur úr fjölskyldu Rögnu og Siggu en Ingimar afi þeirra og Ragna systir hans stofnuðu blómabúðina Flóru Austurstræti 7 árið 1932 og var hún ein fyrsta blómabúðin í Reykjavík.
Hlökkum til að taka á móti ykkur.
Kær kveðja,
Flóra - garðyrkjustöð